Fara í efni
Menning

Myndlist og gjörningar í Deiglunni

Rashelle Reyneveld, gestalistamaður Gilfélagsins í desembermánuði, býður til myndlistasýningar og gjörningadagskrár í Deiglunni frá fimmtudegi til sunnudags. Þar sýnir hún afrakstur dvalar sinnar. Rashelle er listakona frá Bandaríkjunum sem vinnur þvert á miðla.

  • 16. desember kl. 18.00 til 20:10 – gjörningur
  • 17. desember kl. 18.00 til 20:10 – gjörningur
  • 18. desember kl. 16.00 til 18.00 – myndlistasýning
  • 19. desember – Lokagjörningur – dyrnar opnaðar kl. 18.00, gjörningur hefst kl. 19.00.

„Þessi einkasýning verður samruni augnablika í ljósmyndun, söng og myndbandsvörpun. Fyrstu 2 dagana er gestum boðið að fara inn í íbúð listakonunnar, einum í einu, til að upplifa gjörning. Hún verður með bundið fyrir augun og mun nota lykkjupedal til að búa til söngkór sem byggir á tilfinningunni sem þú kemur með inn í herbergið. Á veggjunum verða ljósmyndir sem gestum er boðið að taka með sem minjagrip,“ segir í tilkynningu frá Gilfélaginu.

„Síðasta kvöldið, á sunnudag, mun hún flytja sönggjörning í Deiglunni. Rashelle hefur nýlega lokið við fyrstu sólóplötu sína Kriya undir nafninu SumVivus sem þýðir ég er lifandi á latínu. Hún mun bráðlega gefa út sína fyrstu stuttmynd sem heitir Tune In.“