Fara í efni
Menning

Mjólkurbúðin verður ævintýraheimur

Solveig Thoroddsen opnar sýninguna Lendar í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins í Kaupvangsstræti 12 á Akureyri í dag, föstudaginn 11. september kl. 17-19. Á sýningunni eru nýleg verk þar sem Solveig skapar litríkan ævintýraheim með landslagi og ýmiss konar verum. Hún sækir meðal annars innblástur í verk Tove Jansson og Múmínálfana, auk íslenskra þjóðsagna.

Í verkunum er að finna myrkari ævintýralega stemningu þar sem ógnir og vá eru aldrei langt undan, en jafnframt er rými fyrir fegurð, kærleik og leikgleði. Persónuleg upplifun listakonunnar af stöðum, sögu og atburðum kemur einnig víða fram.

Solveig vinnur með fjölbreytta miðla og á Lendum má meðal annars sjá málverk, vatnslitamyndir, skúlptúra og veggteppi úr fundnu efni. Einnig verður sýnt myndbandsverk sem hefur verið valið til sýningar á kvikmyndahátíðinni ICJ International Film Award.

Solveig stundaði nám við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands og lauk þaðan meistaragráðu árið 2015. Hún vinnur í ólíka miðla eftir viðfangsefnum hverju sinni og hafa samskipti manneskjunnar og náttúrunnar verið áberandi í verkum hennar, oft með feminísku ívafi.

Sýningin Lendar verður opnuð klukkan 17 í dag sem fyrr segir og stendur til og með 20. september. Hún verður opin um helgina 12.–13. september og dagana 17.–20. september frá klukkan 12 til 17.