Fara í efni
Menning

Marta lék Roxý óvænt 2004 en leikstýrir nú

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.

Marta Nordal leikstýrir söngleiknum Chicago sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í janúar 2023. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Marta tekur þátt í uppsetningu á Chicago því hún var í leikhópnum þegar söngleikurinn var á fjölum Borgarleikhússins árið 2004 undir leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Þá léku Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir aðalhlutverkin, Roxý Hart og Velmu en þegar Steinunn Ólína forfallaðist varð Marta að stökkva samdægurs inn í hlutverk Roxý í hennar stað.

Að þessu sinni mun leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leika Roxý og söngkonan Jóhanna Guðrún Velmu. Aðrir leikarar eru Margrét Eir, Björgvin Franz Gíslason, Arnþór Þórsteinsson og Bjartmar Þórðarson.

Marta Nordal í Chicago árið 2004. Ljósmynd: Sigfús Már Pétursson.