Fara í efni
Menning

Marsibil, kufungar og skeljaskvísur

Marsibil G. Kristjánsdóttir listakona frá Þingeyri opnar listasýningu í Deiglunni á Akureyri í kvöld, föstudagskvöld.

Á sýningunni verða sýnd verk sem eiga sterka tengingu við fjörur Íslands. „Síðustu árin hefur Marsbil unnið mikið með þá gersemi sem finna má í fjörunni. Eins og kufunga, skeljar, ígulker, kalkþörunga og hörpudiska. Úr þessum magnaða efnivið hefur listakonan unnið ýmis verk sem verða nú sýnd í Deiglunni. Frá því í lok desember hefur listakonan dvalið í listamannaíbúð Gilfélagsins á Akureyri og þar hefur hún einkum unnið að kufunga- og skeljamyndum. Verða þær til sýnis í Deiglunni ásamt skeljaskvísum hennar er vakið hafa athygli,“ segir í tilkynningu.

„Blekbóndinn, leikarinn og eiginmenni listakonunnar, Elfar Logi Hannesson, hefur einnig dvalið í íbúð Gilfélagsins. Hefur hans mánaðarverk verið að stúdera skáldaprestinn Matthías Jochumsson með það fyrir augum að gera jafnvel dúltið leikverk eða eftilvill barnabók um Matta. Við opnunina á föstudagskveld 27. janúar mun Elfar vera með stutt erindi eða öllu heldur Mattador um Matta.“

Sýningin Kufungar og skeljaskvísur verður opnuð í kvöld kl.20.20. Sýningin verður opin um helgina, frá kl. 13.00 til 15.00 bæði laugardag og sunnudag.