Menning
Margvísleg myndlist og allrahanda tónlist
02.06.2025 kl. 16:00

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Vikan verður algjör veisla þegar kemur að opnunum nýrra listasýninga, en sex opnanir eru á dagskrá:
Opnanir listasýninga
Fimmtudagur, 5. júní:
- Samsýning norðlenskra listamanna - Mitt rými. Listasafnið á Akureyri, fimmtudagskvöld 5. júní kl. 20.00.
- KIMAREK: Innsetning í tilefni fjörutíu ára starfsferils Margrétar Jónsdóttur. Listasafnið á Akureyri, fimmtudagskvöld 5. júní kl. 20.00.
- Unread Fortunes - listasýning Sunnevu Elvarsdóttur opnar í Kaktus. Fimmtudagskvöld 5. júní kl. 19-22.
- Kristján Eldjárn sýnir í Mjólkurbúðinni Akureyri - Opnun fimmtudaginn 5. júní kl. 17.00. Sýningin stendur til 17. júní.
Laugardagur, 7. júní:
- Opnun ársins í Sigurhæðum - Ný heildarsýning og verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns. Opnun kl. 13-14.
- Línumál - myndlistasýning Vikars Mars í Hofi. Opnun í Hamragili í Hofi laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Sýningin stendur til 23. ágúst.
Tónleikar
- Magnaði Mendelssohn - Hljómsveit Akureyrar. Hamraborg í Hofi. Laugardaginn 7. júní kl 20.00.
- Textavarpið XV - Werner Bekker. Ketilkaffi (inni ef illa viðrar, annars fyrir utan). Laugardaginn 7. júní kl. 15.00. Enginn aðgangseyrir.
- GG Blús - Græni hatturinn, fimmtudaginn 5. júní kl 21.
- Íslenskar drottningar - Söngkonurnar Guðrún Arngríms, Maja Eir og Jónína Björt á LYST, föstudaginn 6. júní kl. 20.30.
- Baggalútur, 20 ára afmælistónleikar. Græni hatturinn, föstudaginn 6. júní og laugardaginn 7. júní kl. 21.
- Gítar og bassi - Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari spila í Akureyrarkirkju. Sunnudaginn 8. júní kl. 20-21.
Nýjar listasýningar eru á döfinni í vikunni. Frá vinstri: Samsýning norðlenskra listamanna í Listasafninu. Vikar Mar sýnir í Hofi. Sunneva Elvarsdóttir sýnir í Kaktus. Kristján Eldjárn sýnir í Mjólkurbúðinni. Einnig opnar ný sýning í Sigurhæðum.
Listasýningar:
- TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri.
- SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri.
- Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.
- Samtal - myndlistarsýning. Listakonurnar Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir mætast undir sýningarheitinu Samtal í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Stendur til 3. júní og opið alla daga frá 12.-17.
Aðrir viðburðir
- Vormarkaður Skógarlundar 2025. Leir- og trémunir og myndlistarvörur til sölu. Fimmtudaginn 5. júní kl. 9-17.30.
- Salsakvöld og ókeypis prufutími í Salsa. Salsa North á Vamos. Fimmtudaginn 5. júní kl. 20.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.