Margra grasa kennir í nýjasta hefti Súlna

Ársrit Sögufélags Eyfirðinga, Súlur, er komið út og þar er að finna alls 12 greinar er varða ýmist fortíð eða nútíð, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.
„Jón Hlöðver Áskelsson segir frá gleði sinni og sorgum í spjalli við Kristínu Aðalsteinsdóttur. Anita Elefsen og Daníel Pétur Daníelsson leiða okkur inn á Síldarminjasafnið á Siglufirði þar sem sjónum er beint að Tý SK 33. Rannveig Karlsdóttir og Elísabet Ásgrímsdóttir fjalla um merkar konur, frumkvöðulinn Jóninnu Sigurðardóttur og listakonuna í Fjörunni, Elísabetu Geirmundsdóttur. Þá er Covid og Akureyri í brennipunkti í grein Grétars Þórs Eyþórssonar. Og Þórsarinn Sigfús Ólafur Helgason segir frá jarðarför KA-mannsins, Gunnars Jakobssonar,“ segir í tilkynningunni. Síðan segir: „Er þá fátt eitt talið af því sem Súlur færa okkur að þessu sinni.“
- Að vanda er bent á að nýir áskrifendur að Súlum eru boðnir velkomnir. Hægt er að gerast áskrifandi með því að hringja í síma 863-75299 eða með því að senda póst á netfangið jhs@bugardur.is
Arnór Bliki Hallmundsson fjallar um Snorrahús, hið eldra, í nýjast hefti Súlna. „Og er óneitanlega forvitnilegt að fræðast meðal annars um tengingu Hafnarstrætis 88 (sem myndin sýnir) og Snorra Jónssonar byggingameistara,“ segir í tilkynningu Sögufélags Eyfirðinga.