Fara í efni
Menning

Málstofa um Matthías og Skugga Svein

Ljósmynd: Auðunn Níelsson

Leikfélag Akureyrar frumsýndi Skugga Svein eftir Matthías Jochumsson um nýliðna helgi. Af því tilefni standa leikfélagið, Flóra menningarhús og Símenntun Háskólans á Akureyri til málstofu á Sigurhæðum á fimmtudaginn, 17. febrúar, klukkan 17.00 til 18:30. Þar verða umræður og umfjöllun um verkið og þjóðskáldið en 100 ár voru árið 2020 frá andláti Matthíasar.

Dagskrá:

  • Kristín Þóra Kjartansdóttir - húsið Sigurhæðir, listamaðurinn Matthías og fjölskylda.
  • Jón Gnarr - sjálfur Skugga Sveinn, útilegumennirnir í verkinu með hliðsjón af hugtakinu útilokunarmenning (cancel culture) nútímans.
  • Björgvin Franz, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Árni Beinteinn - tónlist.
  • Marta Nordal leikhússtjóri og leikstjóri verksins - umræður.