Fara í efni
Menning

Ljósmyndasýningin „Með mínum augum“

Ljósmyndasýning Hermanns Gunnars Jónssonar, Hermanns frá Hvarfi, verður í Deiglunni í Listagilinu frá næsta föstudegi til sunnudags.

Á sýningunni eru 37 ljósmyndir. „Hermann Gunnar hefur um árabil fangað fegurð íslensks landslags með ljósmyndum sínum og beinir sjónum oftar en ekki að næsta nágrenni Grenivíkur, Gjögraskaga og Bárðardals,“ segir sýningarstjórinn, Elsa María Guðmundsdóttir, í tilkynningu. „Myndir Hermanns bera vott um næmt auga fyrir náttúrunni, hinu smáa jafnt sem stóra. Í myndum hans leika lipurlega saman birta, skuggar, spegilmyndir og form. Fólk, hestar og gróður birtast í verkum hans, í einföldum fallegum takti við form í náttúrunni, þannig að engu er ofaukið“

Sýningin stendur aðeins þessa einu helgi. Hún hefst á föstudaginn klukkan 16.00 og þá er opið til 20.00. Á laugardag og sunnudag er hún svo opin frá kl. 11.00 til 17.00.

Hermann Gunnar Jónsson - Hermann frá Hvarfi.