Fara í efni
Menning

Ljóðasafn Hjálmars Freysteinssonar

Úrval ljóða og lausavísna eftir Hjálmar Freysteinsson verður gefið út á bók í maí næstkomandi. „Hjálmar var landsþekktur fyrir snjallar vísur. Hann var allra manna fundvísastur á þær hliðar á málum sem vöktu kátínu, gat alltaf séð það spaugilega, aldrei rætinn eða klúr, bara skemmtilegur,“ segir í tilkynningu frá Bókaútgáfunni Hólum, sem gefur bókina út en Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Höskuldur Þráinsson búa hana til prentunar.

Hjálmar fæddist 18. maí 1943 og lést 6. febrúar 2020. Hann starfaði sem heimilislæknir, lengst af á Akureyri.

Í bókinni, sem áætlað er að verði um 200 blaðsíður, verður Tabula Memorialis og þar verða skráð nöfn þeirra sem vilja votta lækninum og hagyrðingnum, Hjálmari Freysteinssyni, virðingu sína (nema viðkomandi kjósi ekki nafnbirtingu). Forkaupsverð bókarinnar verður 6.980 krónur (innifalið er bæði sendingargjald og virðisaukaskattur). Í tilkynningu frá Hólum eru áhugasamir kaupendur beðnir að senda nafn sitt, heimilisfang og kennitölu á netfangið holar@holabok.is, eða hringja í síma 692-8508 eftir klukkan 16 á daginn, og verða þá greiðslupplýsingar sendar til baka.