Fara í efni
Menning

Litrík menning og hrífandi listir að sumri

Frá einum af fjölmörgum viðburðum Listasumars 2025. Mynd: Akureyrarbær.

Listasumar á Akureyri hefst fimmtudaginn 25. júní og stendur í rúmar þrjár vikur með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Einn af hápunktum hátíðarinnar verður á sjálfan opnunardaginn þegar Gilfélagið býður gestum og gangandi á dansiball í göngugötunni.

Í tilkynningu frá Akureyri segir að dagskráin teygi sig yfir alla daga og þar megi finna myndlistarsýningar, uppistand, skapandi vinnustofur, matarsmiðjur, töfrasýningar og alls konar uppákomur „sem með einum eða öðrum hætti tengjast litríkri menningu og hrífandi listum,“ eins og það er orðað.

„Það hafa verið að detta inn viðburðir fram á síðustu stundu og er gaman að sjá hvað skapandi og hugmyndaríkt fólk er áhugasamt um að gera Listasumar spennandi og skemmtilegt,“ segir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Listasumars. „Ég skora á bæjarbúa og gesti bæjarins að kynna sér dagskrána og er sannfærð um að allir finni þar eitthvað við sitt hæfi.“

Aðgangur er ókeypis á alla viðburði Listasumars.

Dagskrána er að finna á www.listasumar.is.