Fara í efni
Menning

„Litlir kassar“ og öll hin Þokkabótarlögin

Afmælis-Þokkabót. Frá vinstri: Jóhanna Þórhallsdóttir, Ingólfur Steinsson, Halldór Gunnarsson, Lárus H. Grímsson, Gylfi Gunnarsson, Lárus H. Grímsson, Haraldur Þorsteinsson og Ásgeir Óskarsson.

Hálf öld var nýlega frá stofnun hljómsveitarinnar Þokkabótar og því er fagnað um þessar mundir. Sveitin hélt upp á afmælið í Salnum í mars, leikurinn verður endurtekinn 5. júní en í millitíðinni verða afmælistónleikar á Akureyri – Þokkabót kemur fram á Græna hattinum í kvöld, laugardagskvöldið 31. maí kl. 21.00.

Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Upphafið, kom út 1974. „Hún vakti mikla athygli fyrir beitta texta, grípandi lög og geðgóðan flutning. Þekktasta lagið var „Litlir kassar“ og var einkennandi fyrir þá geðgóðu þjóðfélagsrýni sem einkenndi sveitina okkar á milli. Þetta var fyrsta platan sem bar við þjóðfélagsgagnrýni á Íslandi, og náði einhverjum hæðum. Þrjár plötur fylgdu síðan í kjölfarið,“ segir í tilkynningu um tónleikana.

„Hvergerðingurinn Halldór Gunnarsson og seyðfirsku piltarnir Ingólfur Steinsson, Gylfi Gunnarsson og Magnús R. Einarsson skipuðu upphaflegu sveitina en nokkrar breytingar urðu í framhaldinu,“ segir í tilkynningunni. Á tónleikunum verða Halldór, Ingólfur og Gylfi ásamt Lárusi H. Grímssyni, Haraldi Þorsteinssyni og Ásgeiri Óskarssyni sem voru með á síðustu plötunni, Í Veruleik. „Í hópinn bætist nú við Jóhanna Þórhallsdóttir, söngkonan ástsæla, en hún kom mikið við sögu á einni plötu Þokkabótar, Fráfærum.“

Margir kunnu að meta þjóðlagaskotna músík Þokkabótar á sínum tíma og ekki er vafi á að margir hlakka til að endurnýja kynnin og rifja þannig upp liðna tíð. „Þokkabót lofar góðri skemmtun og nostalgíu,“ segir í tilkynningunni.

Þokkabót í árdaga. Frá vinstri: Magnús R. Einarsson, Halldór Gunnarsson, Ingólfur Steinsson og Gylfi Gunnarsson.