Fara í efni
Menning

Litla skrímslið og stóra skrímslið frumsýnt í Hofi

Ljósmynd: Unnur Anna Árnadóttir

Leikfélag Akureyrar frumsýnir barnaverkið Litla skrímslið og stóra skrímslið í Svarta kassanum í Menningarhúsinu Hofi á laugardaginn.

„Verkið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er byggt á vinsælum bókum Áslaugar Jónsdóttur en þær hafa slegið í gegn hjá börnum frá fyrstu útgáfu árið 2004 og verið þýddar á ótal tungumál,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Þar segir að leikritið sé „falleg og einlæg saga um vináttu og samskipti. Verkið er sérstaklega ætlað yngri börnum þó fullyrða megi að öll fjölskyldan muni hafa gaman að uppátækjum og hjartnæmu sambandi skrímslanna.“ 

Margrét Sverrisdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson leika litla skrímslið og stóra skrímslið. Leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir. Um leikmynd og búninga sér Björg Marta Gunnarsdóttir en um tónlistina Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Gervin eru í höndum Hörpu Birgisdóttur en um hljóð og ljós sjá Árni F. Sigurðsson og Benni Sveinsson.

Þetta er í annað sinn sem leikritið um Litla skrímslið og stóra skrímslið er sýnt í atvinnuleikhúsi en verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2011 í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar við frábærar undirtektir, að því er segir í tilkynningunni.

Frumsýningin er kl. 13.00 á laugardaginn. Önnur sýning er sama daga og tvær á sunnudaginn. Sá hafður verður hafður á næstu vikur; tvær sýningar á laugardegi og tvær á sunnudegi.

Smellið hér til að sjá frekari upplýsingar um sýninguna.