Listmarkaður í Svörtum bókum annað kvöld
Líf og fjör verður í bókabúðinni Svörtum bókum annað kvöld, miðvikudagskvöld, en þá verður haldinn list- og handverksmarkaður í versluninni í tilefni alþjóðlegs dags lista, World Art Day. Markaðurinn verður vettvangur fyrir listafólk og skapandi aðila í nærumhverfinu til að sýna og selja verk sín og er í takt við þann skapandi anda sem hefur einkennt starfsemi bókaverslunarinnar undanfarið.
„Við höfum alltaf viljað skapa rými fyrir meira en bara bækur,“ segir Ren Tintus Gates sem á og rekur Svartar bækur ásamt maka sínum Stu Gates. Segir hann að á miðvikudagskvöldið milli kl. 18.30 og 22 gefist gott tækifæri til þess að kynnast nýjum listamönnum en þar verður hægt að kaupa prentverk, teikningar, skartgripi og aðrar smærri vörur eftir fólk á svæðinu.
Markaðurinn er haldinn á sama tíma og stórar breytingar eru fram undan hjá rekstraraðilum Svartra bóka því fljótlega mun verslunin færa sig úr miðbænum og yfir í Laxdalshús í Innbænum. „Við erum byrjaðir að undirbúa flutninginn en okkur langaði líka að gera eitthvað skemmtilegt hér í miðbænum áður en við förum héðan,“ segir Ren og bætir við að núverandi húsnæði sé skemmtilegt og hafi nýst þeim vel undanfarin tvö ár. Nú sé hins vegar fljótlega komið að nýjum kafla. Hann ítrekar að flutningarnir muni taka tíma en stefnt er að því að starfsemi verslunarinnar færist smám saman yfir á nýjan stað og að þeir verði alfarnir úr miðbænum í haust.
- Nánar verður rætt við eigendur Svartra bóka um helgina þar sem þeir segja betur frá því sem fram undan er í Laxdalshúsi.