Fara í efni
Menning

Listasumar á Akureyri hefst á morgun

Iðandi líf í Listagilinu á Listasumri 2021. Mynd: Bjarki Freyr Brynjólfsson.

Listasumar á Akureyri hefst á morgun með því að tónlistarmaðurinn Stebbi Jak mætir með kassagítarinn og heldur tónleika í Listasafninu. Upphaflega stóð til að Stebbi yrði utandyra en þar sem spáð er hressandi rigningu verða tónleikarnir inni. Þeir hefjast klukkan 15.00.

„Listasumar á Akureyri 2022 hefst fyrr en vanalega og stendur til 23. júlí. Er þetta gert til að koma til móts við vaxandi áhuga á listasmiðjum fyrir börn og ungmenni eftir skólalok. Fyrstu listasmiðjur hátíðarinnar hefjast í næstu viku og eru ennþá nokkur pláss laus,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

„Við hvetjum alla til að kynna sér hátíðina og dagskrána en fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og fullorðna eru í boði sem tilvalið er að prófa. Skráning er nauðsynleg í allar smiðjurnar og hægt er að sjá frekari upplýsingar á www.listasumar.is

Alls konar gjörningar, tónleikar, sýningar og annað skemmtilegt verður á boðstólnum og má með sanni segja að ævintýrin verði til á Listasumri með fjölbreyttum uppákomum og upplifunum þar sem gestir og bæjarbúar njóta viðburða saman.“

Samstarfsaðilar Listasumars eru: Akureyrarbær, Listasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Rósenborg, Gilfélagið, Menningarhúsið Hof, Sundlaug Akureyrar, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bílaklúbbur Akureyrar, Ungskáld, LYST kaffihús, Ketilkaffi, Garún Bistro Bar, Braggaparkið, Geimstofan.

Heimahöfn Listasumars á samfélagsmiðlum er finna á Facebooksíðu Akureyrarbæjar https://www.facebook.com/akureyri og á Instagram https://www.instagram.com/akureyrarbaer/

Á vef bæjarins eru gestir Listasumars hvattir til að nota myllumerkin #listasumar og #hallóakureyri