Fara í efni
Menning

Líf í listinni – Hof krefst ekki hraðprófs

Framundan er annasöm helgi hjá Menningarfélagi Akureyrar. Af því tilefni er athygli vakin á því að stóri salurinn í Hofi, Hamraborg, sé eitt sóttvarnarhólf sem tekur 500 manns í sæti. „Ekki þarf því að fara í hraðpróf fyrir viðburðina en virða þarf grímuskyldu. Einnig eru gestir hvattir til að viðhafa einstaklingsbundnar sóttvarnir og gæta að fjarlægðarmörkum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

  • Á fimmtudagskvöldið stíga Fullorðin á svið Hamraborgar. „Sýningin hefur slegið rækilega í gegn en nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða. Eftir sýninguna á fimmtudaginn eru aðeins tvær sýningar eftir í Hofi áður en þessi sprenghlægilega sýning fer suður í Þjóðleikhúsið,“ segir í tilkynningunni.
  • Á föstudagskvöldinu er komið að Ara Eldjárn og Jóni Ólafssyni „sem ætla í gegnum stórbrotinn feril þess fyrrnefnda í tali og tónum. Uppistand, sögur, grín, glens og músík og ljóst að enginn fer samur heim!“
  • Á laugardeginum klukkan 15 er komið að A! Gjörningahátíð en þá kemur listamaðurinn Snorri Ásmundsson í Hof. „Snorri er þekktur fyrir tilraunir sínar til að hafa áhrif á samfélagið með ýmiskonar uppákomum og hefur oft verið kallaður óþekka barnið í íslensku listalífi.“
  • Um kvöldið verður svo „veisla í Hofi þegar stórstjarnan Friðrik Ómar fagnar fertugsafmælinu sínu á sviði Hamraborgar ásamt hópi vina og samstarfsmanna. Koluppselt er á viðburðinn og ljóst að þarna verður fjörið um helgina.“
  • Fjölskyldusöngleikurinn Benedikt búálfur er sýndur í Samkomuhúsinu bæði á laugardag og sunnudag „en nú fer að líða að leiðarlokum,“ segir í tilkynningunni. Síðasta sýning á Akureyri er auglýst 31. október.