Fara í efni
Menning

Leitað að fyrsta hópi UngDans Akureyrar

Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir, stofnendur Danssetursins.

Nýr vettvangur fyrir ungt danslistafólk er að verða til á Akureyri en nú hefur verið opnað fyrir skráningu í fyrsta verkefni UngDans Akureyrar, nýs dansflokks á vegum Danssetursins. Verkefnið er ætlað dönsurum á aldrinum 16 til 25 ára sem hafa áður stundað dans.

Að verkefninu standa Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir, stofnendur Danssetursins. Markmið þeirra er að skapa ungu danslistafólki á Norðurlandi tækifæri til að taka þátt í skapandi vinnuferli með starfandi danshöfundum og kynnast því hvernig dansverk verða til, frá fyrstu hugmynd að sviðsetningu.

Listræn stjórn fyrsta verkefnisins verður í höndum Ólafar Óskar Þorgeirsdóttur, danshöfundar og dansara sem starfar í Svíþjóð. Á æfingatímabilinu í ágúst mun hún vinna með þátttakendum að þróun nýs dansverks þar sem áhersla verður lögð á samvinnu, sköpun og fjölbreyttar vinnuaðferðir.

Í fréttatilkynningu frá Danssetrinu kemur fram að  markmiðið sé ekki bara að æfa dansverk heldur einnig að veita þátttakendum raunhæfa innsýn í vinnuferli atvinnudansara og skapa umhverfi þar sem þeir geti þróast sem sviðslistafólk.

Þótt fyrsta verkefnið fari fram í ágúst er stefnt að því að UngDans Akureyri verði varanlegur vettvangur fyrir ungt danslistafólk. Hugmyndin er að ólíkir danshöfundar komi að verkefninu á komandi árum og leiði ný sköpunarverkefni sem gefi þátttakendum tækifæri til að skapa og koma fram.

Verkefnið hlaut nýverið styrk úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar, sem gerir mögulegt að hrinda fyrsta áfanganum í framkvæmd. Að sögn stofnenda er styrkurinn mikilvægt skref í uppbyggingu verkefnisins og vonast þær til að UngDans Akureyri verði öflug viðbót við menningarlíf Norðurlands.

Æfingar hefjast 4. ágúst og fara fram þrjú kvöld í viku. Umsóknarfrestur er nú opinn fyrir dansara á aldrinum 16 til 25 ára sem hafa reynslu af dansi og vilja taka þátt í skapandi verkefni undir leiðsögn starfandi danshöfundar. Þátttökugjald er 15.000 krónur og hægt er að hafa samband við Danssetrið gegnum netfangið danssetrid@danssetrid.is.