Menning
Leifur kynnir bók sína um hernámsæskuna
20.10.2026 kl. 21:00
Leifur Reynisson sagnfræðingur sendi nýverið frá sér bókina Hernámsæskan – Áhrif seinni heimsstyrjaldar á íslenskt æskufólk. Leifur kynnir bókina á fimmtudaginn í Minjasafninu á Akureyri en þar stendur nú einmitt yfir sýningin Í hers höndum sem fjallar um veru breskra, bandarískra, norskra og kanadískra hermanna í Eyjafirði í seinni heimsstyrjöldinni.
„Ísland fékk nýjan svip með hernáminu. Sú værð sem hafði ríkt yfir mannlífinu vék fyrir daglegum stórtíðindum. Þrammandi hermenn, hraðskreið farartæki, skipamergð, drynjandi flugvélar, sírenuvæl, sprengjuhvellir og geltandi byssur – allt þetta blandaðist saman við lúðraþytinn, gosdrykkina og glaðværðina sem ríkti meðal dáta á frívakt,“ segir í tilkynningu um bókina. „Samfélagið gjörbreyttist á fáeinum árum sem kom hvað best fram hjá unga fólkinu. Unglingamenning tók að skjóta rótum, tími stælgæjans og skvísunnar var runninn upp. Leifur Reynisson sagnfræðingur fléttar þá sögu saman með litríkum frásögnum í bók sinni Hernámsæskan.“
- Minjasafnið á Akureyri er húsinu númer 58 við Aðalstræti.
- Kynningin er fimmtudaginn 22. október frá klukkan 17.00 til 18.00.
- Aðgangur er ókeypis
