Menning
Langar þig til að leika í Skilaboðaskjóðunni?
03.09.2026 kl. 08:30
Um það bil 120 börn og unglingar hafa skráð sig í áheyrnarprufur fyrir leikritið Skilaboðaskjóðuna hjá Leikfélagi Akureyrar sem frumsýnt verður í febrúar. Umsóknarfrestur rennur út í dag en prufurnar fara fram í Samkomuhúsinu um helgina.
„Það er alveg ótrúlega gaman að sjá þennan fjölda af börnum og ungmennum sem vilja taka þátt í Skilaboðaskjóðunni,“ segir Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri og leikstjóri sýningarinnar. „Ég er alveg handviss um að þetta verður mikið ævintýri hjá okkur í Ævintýraskóginum.“
Leikritið um Skilaboðaskjóðuna eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson, með tónlist Jóhanns G. Jóhannssonar, var fyrst sett á svið í Þjóðleikhúsinu árið 1993 og hefur heillað kynslóðir barna um árabil. Nú verður það loksins sett á svið í heimabæ höfundarins en frumsýnt verður með pompi og prakt í Samkomuhúsinu 13. febrúar.
Auglýst var eftir krökkum og unglingum á aldrinum 9-18 ára til að fara með ólík hlutverk í verkinu. Leitað er að sjálfum Putta litla, einni aðalpersónu sögunnar, en einnig öðrum persónum og kynjaverum úr Ævintýraskóginum.
Bergur Þór hefur mikla reynslu af uppsetningu barnasýninga og segir þetta einstakt tækifæri fyrir börn og unglinga á svæðinu. „Allavega er það reynsla mín, eins og þegar ég leikstýrði Bláa hnettinum og Billy Elliot, að það sé upplifun sem gleymist aldrei, að taka þátt í leiksýningu.“
Frestur til að skrá sig í prufur rennur út í dag, 3. september.
- Hér má nálgast allar nánari upplýsingar. Áheyrnarprufur fyrir Skilaboðaskjóðuna – Mak