Fara í efni
Menning

Langar þig að syngja í Kór Akureyrarkirkju?

Kór Akureyrarkirkju hefur auglýst eftir söngvurum fyrir veturinn og verður með prufur sunnudaginn 21. ágúst.

Í tilkynningu segir að kórinn geti bætt við sig söngvurum í allar raddir. „Kórinn er fjölmennur og flytur fjölbreytta tónlist bæði við helgihald og á tónleikum. Æfingar eru á þriðjudagskvöldum kl. 19:30-21:30. Frábær félagsskapur og spennandi vetur fram undan,“ segir þar. 

„Stjórnandi kórsins er Þorvaldur Örn Davíðsson. Hann hefur komið víða fram sem kórstjóri m.a. á fjölmörgum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í Íslensku óperunni og gefið út íslenska kórtónlist á vegum Universal.“

Skráning og nánari upplýsingar: thorvaldurorn@akirkja.is