LA frumsýnir Fasteignamartröðina
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld, föstudagskvöld, verkið Fasteignamartröðin eftir litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité. Verkið fjallar á gamansaman en jafnframt beittan hátt um raunveruleika ungs fólks á húsnæðismarkaði og ferðalag inn í frumskóg fasteignasala, banka og lánardrottna.
Aðalpersónan, Arnrún, er á þrítugsaldri og þarf skyndilega að finna sér nýtt heimili eftir sambandsslit. Hún getur ekki hugsað sér að flytja aftur í foreldrahús og leigumarkaðurinn heillar hana ekki. Hún ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð og þá hefst grátbroslegt ferðalag um fasteignamarkaðinn.
Á leiðinni kynnist hún fjölbreyttu mannlífi íbúðaseljenda og þarf að fóta sig í völundarhúsi bankastofnana. Undir húmornum leynist samfélagsádeila þar sem meðal annars er spurt hverju þurfi að fórna til að komast inn á húsnæðismarkaðinn, hvenær heimili hætti að vera heimili og verði að fjárfestingu og hvort leitin að draumaheimilinu þurfi endilega að verða að martröð.
Verkið var valið besta erlenda leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2021. Í uppsetningu Leikfélags Akureyrar mætir persónusköpun í anda Sex and the City absúrdveröld Kafka, segir í kynningu verksins á vef Menningarfélags Akureyrar.

Höfundur Fasteignamartraðarinnar, litháíska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité. Hún verður viðstödd aðra sýningu verksins á sunnudaginn.
Höfundurinn kemur til Akureyrar
Gabrielé Labanauskaité verður sérstakur gestur Leikfélags Akureyrar í tengslum við aðra sýningu Fasteignamartraðarinnar í Samkomuhúsinu á sunnudaginn, 11. október.
Að sýningu lokinni verður „spurt og svarað“ með höfundinum. Þar gefst áhorfendum tækifæri til að heyra hana segja frá tilurð verksins, hugmyndunum að baki því og hvernig það speglar samfélagið og reynslu þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref inn á fasteignamarkaðinn. Einnig verður rætt um hvernig hugmyndir verksins urðu að leikriti og hvers vegna sagan eigi erindi við áhorfendur langt út fyrir heimaland höfundarins.
Adolf Smári Unnarsson leikstýrir verkinu og þýðir. Leikmynd og búningar eru eftir Brynju Björnsdóttur, tónlist eftir Jóhannes Damian R. Patreksson, hljóðhönnun eftir Gunnar Sigurbjörnsson og lýsing eftir Fjölni Gíslasyni. Júlía Gunnarsdóttir er dramatúrg og Harpa Birgisdóttir sér um hár og förðun.
Urður Bergsdóttir fer með hlutverk Arnrúnar en önnur hlutverk eru í höndum Hjalta Rúnars Jónssonar, Hólmfríðar Hafliðadóttur, Jökuls Smára Jakobssonar og Vigdísar Höllu Birgisdóttur.
Fasteignamartröðin verður aðeins sýnd í október og nóvember.