Fara í efni
Menning

Kvennakórinn kveður Valmar á sunnudag

Kvennakór Akureyrar kveður stjórnandann Valmar Väljaots, með vortónleikum og kræsilegu kaffihlaðborði í Akureyrarkirkju á sunnudaginn - mæðradaginn 10. maí.

Mikil kveðjuhelgi er framundan því eins og akureyri.net greindi frá í gær verða kveðjutónleikar Valmars með Karlakór Akureyrar á morgun, laugardag. Hann hefur stjórnað báðum kórum síðustu ár en hefur verið ráðinn kennari Tónlistarskóla Skagafjarðar á Sauðárkróki og flyst senn þangað. 

Undanfarin ár hefur Kvennakór Akureyrar (KVAK) sungið við messu í Akureyrarkirkju á Mæðradaginn og haldið vortónleika með veglegu kaffihlaðborði í kjölfarið í Safnaðarheimili kirkjunnar. „Þetta hefur mælst vel fyrir. Konur eru flestar mæður og allar eru þær dætur mæðra og ekki hefur glæsilega kaffihlaðborðið fælt frá. Hlaðborðið er innifalið í miðaverðinu,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

Tónleikarnir hefjast kl. 14:00 í kirkjunni og kaffihlaðborð verður í Safnaðarheimilinu strax á eftir. Miðaverð er 5.000 krónur en ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Tekið er fram í tilkynningu að posi verði ekki á staðnum.

„Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og KvAk mun syngja virkilega skemmtileg lög undir stjórn og við undirleik Valmars Väljaots,“ segir í tilkynningunni. „Lögin eru úr öllum áttum. Meðal annarra, And So It Goes með Billy Joel, Must Be Love Laufeyjar, Shallow úr samnefndri kvikmynd, Orð Braga Valdimars, Vaki vornótt Birgis Arasonar, Enn syngur vornótt Sigfúsar Halldórsson og fleiri frábær lög.“

Kórinn vonast til þess að sem flestir komi „og taki þátt í því að kveðja okkar yndislega kórstjóra Valmar. Við erum strax farnar að sakna hans því hver einasta æfing er lífleg, skemmtileg og hin besta núvitund. Þetta verður þó ekki alveg síðasta verkefnið með Valmari því hann mun fylgja okkur á Landsmót kvennakóra í Suðurnesjabæ aðra helgina í júní.“

Landsmót eru haldin þriðja hvert ár og þetta er annað mót KVAK undir stjórn Valmars. „Síðasta Landsmót var haldið í Reykjavík og sló kórinn þar rækilega í gegn með flutningi á Queen laginu Boemien Rabsody í Hörpu. Þar lék Valmar undir á flygilinn ásamt því að stjórna okkur, sem ekki er létt verk. Það eru ekki allir sem fá 40 konur til að hlýða og það á sama tíma. Undirleikurinn hljómaði eins og heil hljómsveit léki inn í flyglinum,“ segir í tilkynningu frá Kvennakór Akureyrar.