Kvennakórinn Embla: Messa fyrir særða jörð

Kvennakórinn Embla flytur Messu fyrir særða jörð á tónleikum í Glerárkirkju á sunnudaginn kemur, 1. júní, ásamt hljómsveit, Þórunni Ósk Marínósdóttur violuleikara og Erlu Dóru Vogler mezzosópran. Verkið er eftir norska tónskáldið Ketil Björnstad og textahöfundinn Erik Hillestad, sem einnig er norskur. Stjórnandi er Roar Kvam.
Erla Dóra lærði söng við Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs, Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarháskóla Vínarborgar. „Erla er fjölbreyttur flytjandi og hefur tekið þátt í ýmsum tónleikaröðum og verkefnum ásamt því að vera flytjandi á upptökum. Erla hefur verið einsöngvari með Kvennakórnum Emblu í nokkrum verkefnum við góðar undirtektir,“ segir í tilkynningu frá kórnum.
„Þórunn Ósk Marínósdóttir lauk meistaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Brussel og hefur starfað í ýmsum kammerhópum auk þess að vera fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún kemur reglulega fram sem einleikari og hefur starfað ötullega á sviði kammertónlistar.“
Messan er rytmísk, segir í tilkynningu frá kórnum; „hljómsveitin samanstendur af trommum, bassa, rafgítar, píanói/ hljómborði. Þórunn Ósk Marínósdóttir leikur einleik á violu og Erla Dóra Vogler syngur einsöng; hlutverk Móður Jarðar. Kórinn syngur hlutverk manneskjunnar á jörðinni.“
Boðskapur messunnar er „að við sofnum ekki á verðinum, að við verðum ekki sinnulaus gagnvart jörðinni og lífinu, að við glötum ekki trúnni á sjálft lífið. Tónlistin og textinn eru óhefðbundin fyrir Messu, en láta engann ósnortinn,“ segir í tilkynningunni.
Tónleikarnir eru í Glerárkirkju á sunnudaginn sem fyrr segir. Þeir hefjast kl. 17:00. Aðgangseyrir 5.000 krónur og miðasala verður við innganginn.