Fara í efni
Menning

Kvennakórinn Embla með Vínarveislu í Hofi

Kvennakórinn Embla býður nýja árið velkomið næsta sunnudag með „sannkallaðri Vínarveislu“ í Hofi eins og það er orðað í tilkynningu.

Þar verða flutt lög úr óperettum, þekktir polkar og sveiflandi vínarvalsar. Meðal þess sem flutt verður má nefna Kampavínssönginn úr Leðurblökunni, Valsasyrpurnar Dóná svo blá, Listamannlíf, Sögur úr Vínarskógi og Vínarblóð eftir Johann Strauss, Vín borg minna drauma, Nótt í Feneyjum, Radetsky marsinn og hina fjörugu Kampavínskviðu ásamt fleirum þekktum lögum frá blómatíð Vínartónlistarinnar.

Einsöngvari með kórnum er stórtenórinn Gissur Páll Gissurarson og Salonghljómsveit Akureyrar leikur með. Stjórnandi er Roar Kvam.

„Hefjum árið með bros á vör í ljúfri valsasveiflu, gleðjumst og kætumst og bjóðum nýtt ár velkomið með einstakri tónlistarveislu,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Vínarveislan verður í Hömrum í Hofi og hefst klukkan 17.00. Miðasala er á vef MAk.