Kveldúlfur snýr aftur á Hjalteyri um helgina
Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð. Meðal þeirra sem stíga á svið eru Hjálmar, Benni Hemm Hemm, Inspector Spacetime og Bent.
Hátíðin verður haldin í portinu á milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og aðstöðu Kraftlyftingafélags Akureyrar. Þar verður hrátt iðnaðarumhverfi gömlu verksmiðjunnar nýtt sem umgjörð um tónlistarhátíðina, með Eyjafjörðinn og fjöllin í kring sem bakgrunn.

Inspector Spacetime.
Nafn hátíðarinnar er dregið af Kveldúlfi, fyrirtæki sem rak síldarverksmiðjuna á árum áður. Verksmiðjan var reist árið 1937 og skv. sumum heimildum var hún þá sú stærsta í heiminum.
Alls koma tíu atriði fram á Kveldúlfi í ár. Auk Hjálma, Benna Hemm Hemm, Inspector Spacetime og Bents eru það Saint Pete, RAKEL, Salóme Katrín, Kusk & Óviti, Pitenz og Amor Vincit Omnia.

Hjálmar.
Í fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar er bent á að Hjalteyri hafi á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem vettvangur lista og menningar og er gamla síldarverksmiðjan þar orðin vel þekkt fyrir sýningar og aðra menningarviðburði. Kveldúlfur nýtir sér þá umgjörð en hátíðin teygir sig jafnframt út fyrir sjálfa tónlistina.
Á hátíðarsvæðinu verða meðal annars matarvagnar og vinnustofur listafólks verða opnar gestum. Þá verður opinn heitur pottur á svæðinu og jafnvel hægt að fá sér húðflúr á meðan á hátíðinni stendur.

Frá tónlistarhátíðinni Kveldúlfi á Hjalteyri 2025.
Allar nánari upplýsingar um dagskrá og miðasölu má finna á vef hátíðarinnar.
Kveldúlfur er haldinn af Leyni og nýtur styrks frá Hörgársveit.