Fara í efni
Menning

Kvæðatónleikar á Hótel Natur á föstudagskvöld

Landsamtök kvæðamanna halda landsmót á Hótel Natur á Þórisstöðum um næstu helgi og á föstudagskvöldið verður haldnir þar kvæðatónleikar sem opnir eru almenningi.
 
Meðlimir kvæðafélaga víðs vegar að af landinu kveða sér hljóðs og hægt verður að njóta þess að hlusta á ný ljóð og gamlar stemmur, að því er segir í tilkynningu.
 
Aðgangseyrir er 1.000 krónur. „Te, kaffi og konfekt verður á boðstólum og við hlökkum til þess að njóta góðrar kvöldstundar með menningararfleifðina okkar í forgrunni,“ segja kvæðamenn í tilkynningu.