Fara í efni
Menning

Krufning á sjálfsmorði í Samkomuhúsinu

Marta Nordal, leikstjóri sýningarinnar og leikhússtjóri LA, lengst til vinstri, ásamt útskriftarhópi LHÍ. Mynd af vef MAk.

Æfingar eru hafnar á leikverkinu Krufning á sjálfsmorði eftir Alice Birch í þýðingu Sölku Guðmundsdóttur. Sýningin er samstarf Leikfélags Akureyrar, Þjóðleikhússins og Listaháskóla Íslands. Um er að ræða útskriftarverkefni leikarabrautar LHÍ.

Krufning á sjálfsmorði fjallar um þrjár kynslóðir kvenna þar sem áhrif sorgar og áfalla vara mann fram af manni, segir á vef Menningarfélags Akureyrar. Þar er spurt: Hvað mótar persónu okkar mest? Erfðir, uppeldi eða samfélagsleg áhrif?

Alice Birch er eitt áhugaverðasta unga leikskáld Breta. Krufning á sjálfsmorði var frumsýnt í Royal Court leikhúsinu í London í leikstjórn Katie Mitchell og hlaut Susan Smith Blackburn verðlaunin árið 2018, segir á vef Mak.

„Það er ótrúlega gefandi að takast á við þetta krefjandi og mikilvæga leikrit með leikurum framtíðarinnar,“ segir Marta Nordal leikstjóri sýningarinnar og leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar.

Leikarar eru Almar Blær Sigurjónsson, Björk Guðmundsdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Fannar Arnarson, Kristrún Kolbrúnardóttir, Níels Thibaud Gierard, Örn Gauti Jóhannsson, Stefán Þór Þorgeirsson og Urður Bergsdóttir. Leikmynd og búningar í höndum Brynju Björnsdóttur en um lýsingu sér Ólafur Ágúst Stefánsson.

Krufning á sjálfsmorði verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri 21. maí og flyst svo yfir í Kassann í Þjóðleikhúsinu 27. maí.