Fara í efni
Menning

Kristjana og Svavar Knútur á LYST í kvöld

Í kvöld munu söngkonan Kristjana Stefáns og Svavar Knútur söngvaskáld halda tónleika á LYST í Lystigarðinum í tilefni af 15 ára afmæli fyrstu dúettaplötu sinnar Glæður. Platan kom út árið 2011 og markaði upphaf samstarfs þeirra, sem hefur fallið tónlistaráhugafólki vel í geð.

Á efnisskránni verða lög af Glæðum auk fjölbreyttrar dagskrár með dúettum sem spanna ólíka tónlistarstefnur. Þau hafa undanfarin ár komið reglulega fram saman og eru þekkt fyrir tónleikakvöld þar sem tónlist, húmor og frásagnir fléttast saman. Auk eigin laga flytja þau gjarnan lög eftir ýmsa innlenda og erlenda listamenn; allt frá Abba til Dolly Parton með viðkomu hjá Nick Cave og Páli Ísólfssyni, auk hinna ýmsu gleði- og tregabomba.

Að þessu sinni fá þau einnig til liðs við sig tvær gestasöngkonur, Svövu Rún Steingrímsdóttur og Kristbjörgu Ástu Viðarsdóttur, sem hita upp með stuttri dagskrá og syngja með í völdum lögum með Kristjönu og Svavari Knúti.

„Það verður vonandi enginn svikinn af þessari skemmtilegu og hlýlegu tónleikadagskrá og verða hljómplötur auðvitað til sölu, beint frá býli,“ segir í fréttatilkynningu um tónleikana.

Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miða er hægt að nálgast á lyst.is.

Sunnudagskvöldið 28. júní munu þau Kristjana og Svavar endurtaka leikinn en þá í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þeir tónleikar hefjast sömuleiðis kl. 20 og miðasala er á tix.is.