Fara í efni
Menning

Kristinn G. spjallar við gesti Listasafnsins

Boðið verður upp á listamannaspjall með Kristni G. Jóhannssyni kl. 15.00 í dag, laugardag, á Listasafninu á Akureyri. Þar stendur yfir sýning hans, Málverk.  Stjórnandi er Brynhildur Kristinsdóttir, sýningarstjóri. Aðgöngumiði á Listasafnið jafngildir aðgangi að listamannaspjalli.

Um verkin segir Kristinn: „Ég hefi árum saman gengið til litgrasa og forma í brekkurnar og heiðina sem við mér blasa dag hvern og í spegil Pollsins og í vaðlana, ofið saman litbrigði jarðarinnar með mínum hætti. Í þessum nýlegu málverkum leitar landslagið og málverkið eins konar jafnvægis, sátta.“

Kristinn G. Jóhannsson (f. 1936) er Akureyringur. Stúdent frá MA 1956. Nam myndlist á Akureyri, Reykjavík og Edinburgh College of Art. Lauk kennaraprófi 1962. Starfaði við kennslu og skólastjórn í tæpa fjóra áratugi. Kristinn efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954, en sýndi fyrst í Reykjavík 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann í fyrsta sinn þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Hann hefur síðan verið virkur á sýningavettvangi. Auk málverka liggja eftir Kristin grafíkverk þar sem hann sækir efni í gamlan íslenskan útskurð og vefnað. Hann hefur myndskreytt fjölda bóka m.a. Nonnabækur og þjóðsögur.