Fara í efni
Menning

Kóramessa á sunnudag í Akureyrarkirkju

Kóramessa verður í Akureyrarkirkju á sunnudaginn, 5. mars, kl. 11.00. 

„Nær allir kirkjukórar Eyjafjarðar sameina þar krafta sína og syngja saman fjölbreytta og glæsilega kórtónlist,“ segir í tilkynningu. „Lögð verður áhersla á að flytja efni úr glænýrri sálmabók þjóðkirkjunnar en einnig þekkt verk eins og Hallelújakórinn eftir Händel.“

Í messunni mun prófastur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, sr. Jón Ármann Gíslason, setja sr. Hildi Eir Bolladóttur í embætti sóknarprests Akureyrarkirkju

  • Kirkjukór Laugalandsprestakalls
  • Kór Möðruvallaklausturskirkju
  • Kór Dalvíkurkirkju
  • Kór Ólafsfjarðarkirkju
  • Kór Laufás- og Grenivíkursóknar/Svalbarðskirkju
  • Kór Glerárkirkju
  • Kór Akureyrarkirkju

Stjórnendur og organistar:

  • Ave Sillaots
  • Petra Björk Pálsdóttir
  • Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
  • Páll Barna Szabó
  • Valmar Väljaots
  • Þorvaldur Örn Davíðsson
  • Eyþór Ingi Jónsson