Kontrabassi og gítar í Akureyrarkirkju í kvöld

Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari blása til tónleika í Akureyrarkirkju í kvöld, að kvöldi Hvítasunnudags. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Á efnisskránni eru m.a. „An Olde Fashioned Basspiece“ eftir Árna Egilsson, Ave Maria eftir Astor Piazzolla, Reverie eftir Giovanni Bottesini og Fimm dansar eftir Annette Kruisbrink. Tónleikarnir eru réttur klukkutími að lengd.
„Þó Þórir og Þröstur hafi þekkst lengi er það fyrst núna að þeir leiða saman hesta sína í tónlist,“ segir í tilkynningu um tónleikana. „Þórir er mörgum Akureyringum kunnur enda borinn og barnfæddur á Eyrinni og en ólst upp síðar á Brekkunni. Hann spilar með Sinfóníuhljómsveit Íslands en hefur að auki spilað reglulega með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands alveg frá stofnun þeirrar sveitar m.a. komið fram sem einleikari. Þröstur er meðlimur Hins íslenska gítartríós ásamt því að kenna í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.“
Aðgangseyrir á tónleikana er 3.900 krónur.