Fara í efni
Menning

Karlakór, ljóð, ný bók, Guðrið og Sólstafir

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Í þessari viku má nefna að vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival verður sett í Ketilhúsinu á föstudaginn, Aðalsteinn Þórsson opnar sýningu á Leyni á fimmtudag, ný bók um hernámsárin verður kynnt á Minjasafninu á fimmtudag sömuleiðis og í kvöld verður fimmta Ljóðamótið í fornbókaversluninni Svörtum bókum. Tónlistarunnendur fá talsvert fyrir sinn snúð því færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir og Sólstafir koma fram á Græna hattinum (ekki samtímis þó!), orgeltónleikar verða í Akureyrarkirkju og Karlakór Eyjafjarðar fagnar stórafmæli með stórtónleikum í Hofi.

Tónleikar

  • Guðrið Hansdóttir – Græna hattinum, fimmtudag 22. október kl. 21. Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands með glænýja og ferska tónlist í farteskinu. Hún fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með hringferð um landið.
  • Sólstafir – Græna hattinum, föstudag 23. október kl. 21.  „Það ríkir mikill spenningur í herbúðum Sólstafa að koma norður á Græna hattinn aftur, eftir skammarlega langt hlé á þessum uppáhalds tónleikastað sveitarinnar á Íslandi,“ segir í kynningu.
  • Orgeltónleikar – Akureyrarkirkju, laugardaginn 24. október kl. 12. Pétur Nói Stefánsson organisti leikur stórbrotin orgelverk fyrri alda. Tónleikarnir eru til styrktar orgeli Akureyrarkirkju.
  • Lífið er konsert - Karlakór Eyjafjarðar – Menningarhúsinu Hofi, laugardaginn 24. október kl. 16. Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikum í Hofi, þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi. 
 

Karlakór Eyjafjarðar verður með stórtónleika í Hofi á laugardagskvöld í tilefni af 30 ára afmæli kórsins.

Viðburðir

        • Ljóðamót 05 – Fornbókaversluninni Svörtum bókum Laxdalshúsi, miðvikudag 21. október kl. 20. Nokkur vel valin ljóð lesin og gestir hvattir til þess að koma með ljóð til að deila með hópnum, hvort sem þau eru frumsamin eða eftir aðra höfunda. Eða mæta bara til þess að hlusta og njóta.
        • Hernámsæskan - bókarkynning – Minjasafninu fimmtudag 22. október kl. 17. Leifur Reynisson sagnfræðingur kynnir nýja bók sína um hernámsárin.
        • Fasteignamartröðin – Leiksýning Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu. Föstudag 23. október kl. 20 og laugardag 24. október kl. 20.

Leifur Reynisson sagnfræðingur kynnir nýja bók sína um hernámsárin á Minjasafninu á fimmtudaginn.

Listsýningar

Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 verður sett í Ketilhúsinu á föstudagskvöldið.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.