Fara í efni
Menning

Kærulausar kannanir Melkorku Mjallar

Melkorka Mjöll Kristinsdóttir sendi nýverið frá sér bókina Kærulausar kannanir, „samansafn örsagna og vangaveltna konu sem mætir ofur hversdagslegum augnablikum og sígildum stefjum ýmist undrandi, full efasemda, með háði eða af einlægni,“ eins og segir í kynningu.

Melkorka Mjöll hefur búið á Akureyri hálfan annan áratug og segist lengi hafa skrifað örsögur og pælingar. Í bókinni eru „örsögur þar sem höfundur leyfir lesandanum að skyggnast inn í hversdaginn sinn. Með kímni og léttleika að vopni skoðar hún nærumhverfi sitt hvort sem það er hún sjálf, fjölskyldan, nágrannar eða náttúran og spyr glettinna spurninga. Hversdagurinn er endurtekningasamur og gæti virst þurr en í athugunum höfundar sjáum við að hann er spennandi, síbreytilegur og oft fyndinn.“

Hér má sjá eitt dæmi úr bókinni.

Að klára

Kláraðu það sem þú byrjar;
af disknum,
veturinn í tónlistarnáminu
sumarið í jakka-banka-vinnunni
Kláraðu, kláraðu, kláraðu.
Klukkan klárar jú alltaf sinn hring.

En hvað með fiskana?
Einu sinni var fiskur
sem stökk upp úr vatni
hann kláraði ekki þá vegferð
vegna þess að þó hann væri forvitinn
vildi hann ekki verða fiskur á þurru landi

Ef ég er ekki klukka, ekki vél.
Ef vetur, diskar og sumur
eru ekki mínar mælieiningar
Þá hætti ég þegar mér sýnist
stekk hingað og þangað
einungis til að fá sjónarhorn
eða innblástur
Eða bara til að sjá heiminn
með mínum stóru fiska augum

Kannski set ég hornin
í hornakassann
og kitlandi innblástur í krukku
Og fiska augun gleðjast.

Ekki vegna þess að þau hafi klárað neitt
Heldur vegna þess að allt er opið

Bók Melkorku Mjallar fæst í Eymundsson og Bóksölu stúdenta.

Myndir á bókarkápu „tengjast efni bókarinnar ekki beint heldur óbeint, á þann hátt að hafa veitt höfundi innblástur,“ segir á bakhliðinni „Myndin af bekknum er tekin nálægt Hvíta húsinu í Washington D.C. Neðri myndin skartar höfundi við sjóinn hjá Dalvík.“