Fara í efni
Menning

Jón Gnarr verður Skugga-Sveinn hjá LA

Jón Gnarr verður í hlutverki Skugga-Sveins þegar Leikfélag Akureyrar setur verkið á svið. Frumsýning er áætluð í janúar á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar í dag.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra Skugga-Sveini. „Það er hreint út sagt stórkostlegt að fá náttúruaflið og listamanninn Jón Gnarr í hlutverk Skugga Sveins, eina frægustu persónu íslenskra leikbókmennta. Það eru svo sannarlega spennandi tímar framundan hjá LA og við getum ekki beðið eftir að hefja þetta ferðalag, kveikja í gömlum glæðum þessa verks og enduruppgötva það,“ segir Marta Nordal í tilkynningunni.

Leikritið Skugga-Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var fyrst sett á svið árið 1862.