Fara í efni
Menning

Jóhanna Guðrún leikur Velmu í Chicago

Stórsöngkonan Jóhann Guðrún fer með hlutverk Velmu í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á þeim heimsfræga söngleik, Chicago, sem frumsýndur verður í Samkomuhúsinu í janúar á næsta ári. Þetta kemur fram á vef Menningarfélags Akureyrar.

„Ég hef alltaf haldið mikið upp á söngleikinn Chicago og það er algjör draumur fyrir mig að fá tækifæri til að leika Velmu,“ er haft eftir Jóhönnu Guðrún Jónsdóttur á vef Menningarfélags Akureyrar.

„Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin,“ segir á vef MAk.

Hér er hægt að kaupa miða á söngleikinn á forsölutilboði.