Fara í efni
Menning

Innsetningin Molda í Deiglunni

Innsetningin Molda kemur í norðrið eftir ferðalag í austrið, suðrið og vestrið sl. sumar og vor. Opnunin er kl 11.00 á morgun, 21. desember í Deiglunni á Akureyri, að því er segir í tilkynningu.

Slökunar og hljóðviðburðir verða í rýminu 21.-23.desember. „Við opnun á morgun verður listamannaspjall um verkið, ferlið og ferðalagið um landið. Sýnd verða videoverk úr hinum höfuðáttunum í salnum sem tengir upphafið við endinn,“ segir í tilkynningunni.

„Molda er gerð úr náttúruefnum og rótum. Arnbjörg fékk styrk frá Múlaþingi til að setja verkið upp í tanknum á Djúpavogi í júní 2021. Henni fylgir hljóðinnsetning með ljóði Guðrúnar Evu Mínervudóttur og kontrabassaundirspili Alexöndru Kjeld og gongspili Arnbjargar.

Molda tekur á sig annað form í norðri og býður þig velkomin. Verkið er samtal við rætur og uppruna.“

Opið er sem hér segir:

21. desember kl 11-21 (Fullt í gongslökun kl 19-20:15).

22. desember kl 11-19. (Enn laust á tónlistarviðburðinn Kyrrð kl 17-17:30 með Fanneyju og Ástu Soffíu og í gongslökun með Hljóðheilurum á svæðinu kl 19-20:15, bókið á omurakureyri@gmail.com)

23. desember kl 11-16.

  • Arnbjörg (1979) er búsett á Akureyri og starfar sem yogakennari og er nemandi í HA. Hún hefur sinnt myndlist, tónlist og hönnun um árabil. Molda er hennar fyrsta innsetningarverk en hún gerði ma. hljóðinnsetningu í gamalli kirkju í S Los Angeles við innsetningu tveggja listakvenna 2018. Lestu meira hér á arnbjorg.is.