Fara í efni
Menning

Hverir og svarthol Rebekku Kühnis

Listakonan Rebekka Kühnis opnar nýja sýningu á morgun, fimmtudaginn 24. september, í Mjólkurbúðinni þar sem hún beinir sjónum sínum að hverasvæðum og hinu víðara hugtaki um tómið. Verk sýningarinnar sækja meðal annars í hugmyndina um op sem leið inn í rými sem eru okkur óaðgengileg - hvort sem er bak við yfirborð jarðar eða langt úti í alheiminum.

Í fréttatilkynningu um sýninguna segir að hverasvæði og svarthol verði þannig ákveðnar hliðstæður í sýningunni. Bæði kalla þau fram hugmyndir um óþekkta dýpt og rými sem við sjáum aðeins að hluta. Í verkunum er því leitast við að vekja ímyndunarafl, undrun og spurningar um uppruna, tilvist og það sem tekur við að lokum.

Rebekka Kühnis hefur um árabil verið þekkt fyrir túlkun sína á íslensku landslagi í málverkum og teikningum. Að þessu sinni afmarkar hún viðfangsefnið hins vegar við hverasvæði og hugmyndina um tómið.

Rebekka fæddist árið 1976 í Windisch í Sviss en flutti til Akureyrar árið 2015. Hún stundaði nám við Hochschule der Künste í Bern og lauk þar meistaragráðu í list- og kennslufræði. Hún hefur síðan starfað sem listamaður og kennari og tekið þátt í fjölda einka- og hópsýninga bæði í Sviss og á Íslandi.

Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 24. september kl. 17-19. Hún verður einnig opin föstudaginn 25. september klukkan 17-19 og laugardaginn 26. og sunnudaginn 27. september klukkan 14-17.

Nánari upplýsingar má finna á rebekkakuehnis.ch og á Instagram undir kuehnis_art.