Hver er maðurinn á bak við pabba?
Fyrir ári síðan gaf Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir út sína fyrstu bók, Mamma – sagan þín, sem seldist upp fyrir síðustu jól. Nú er komið að pöbbunum. Nýja bókin, Pabbi – sagan þín, er komin út og verður útgáfunni fagnað á Skáld Hótel á Akureyri á morgun, laugardaginn 7. nóvember kl. 15:30–17:00.
Hugmynd sem varð að bókaútgáfu
Hvernig kviknaði hugmyndin að bókunum? er spurt í tilkynningu, og Heiðbjört Ósk svarar:
„Hugmyndin að mömmubókinni kviknaði fyrir um tveimur árum. María Hólmgrímsdóttir, vinkona mín, skoraði á mig að láta verða af hugmyndinni og sjá sjálf um allt bókaútgáfuferlið. Úr varð að við stofnuðum norðlensku bókaútgáfuna Söguspor og fengum Sísí Sigurðardóttur grafískan hönnuð til liðs við okkur. Þetta varð því töluvert stærra ævintýri en ég hafði kannski séð fyrir mér í upphafi. Það var aldrei spurning hvort við myndum gefa út pabbabók líka, heldur hvenær. Sögur feðra skipta auðvitað jafn miklu máli og sögur mæðra.“

Hönnuðurinn Sísí Sigurðardóttur, Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir og María Hólmgrímsdóttir.
Hver var pabbi áður en hann varð pabbi?
Bækurnar eru hugsaðar sem skemmtilegt ferðalag þar sem foreldrar fá tækifæri til að rifja upp lífið og skrifa söguna sína, segir Heiðbjört. Spurningarnar leiða þau í gegnum barnæskuna, unglingsárin, ástina, draumana, foreldrahlutverkið og allt það sem lífið hefur kennt þeim.
Heiðbjört átti von á að það yrði hugsanlega erfiðara að fá pabba til að taka þátt í bókinni með henni en það reyndust vera óþarfa áhyggjur. „Ég get eiginlega ekki lýst því hvað það var gaman að lesa yfir öll skemmtilegu, fyndnu og einlægu svör feðrana sem taka þátt í bókinni með mér,“ segir hún. „Ég hugsaði oft með mér vá, hvað þeir eru magnaðir að deila þessu með mér. Í bókinni má því finna frásagnir fjölda feðra. Þar á meðal skrifa Bjarki Már Sigurðsson, Magni Ásgeirsson, Svavar Alfreð Jónsson, Dagur B. Eggertsson, Óðinn Svan Óðinsson, Birnir Snær Ingason, Stefán Eiríksson og fleiri.“
Bæjarfulltrúinn og fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson gefur feðrum sem eru að leggja af stað í ferðalagið sem föðurhlutverkið er ráð og segir: Þú þarft ekki að umturna öllu þínu lífi, týna sjálfum þér og verða ekkert annað en pabbi. Haltu áfram að vera maki, vinur, vinnufélagi og passaðu að rækta þessa hluti þó þú sért orðinn pabbi. Það hlutverk á bara að stækka þig.

Gjöf sem verður að fjársjóði
Bækurnar eru innbundnar í hulstri og eru hugsaðar sem gjöf sem gefin er áfram.
„Útfylltar verða bækurnar að fjársjóði fyrir börn, barnabörn og komandi kynslóðir. Mér finnst líka fallegt að hugsa til þess að bækurnar geti skapað samtöl sem við hefðum kannski annars aldrei átt,“ segir í tilkynningu. „Við erum oft svo upptekin af okkar eigin lífi að við gleymum að spyrja foreldra okkar um þeirra líf. Hver voru þau áður en þau urðu mamma og pabbi?“
Heiðbjört vonast til að bækurnar verði ekki síst til þess að styrkja tengslin milli foreldra á efri árum og uppkominna barna.
„Það er aldrei of seint að kynnast og skilja foreldra sína betur og það er svo margt sem við vitum ekki fyrr en við förum að spyrja.“
Bækurnar Pabbi – sagan þín og Mamma – sagan þín verða til sölu í útgáfuhófinu og á vef Söguspors, soguspor.is. Einnig fást þær í helstu bókabúðum landsins, í Kistu og Húsi handanna.
Útgáfuhóf á Skáld Hótel
Útgáfu bókarinnar verður fagnað í setustofu Skáld Hótels á Akureyri á morgu, laugardaginn 7. nóvember kl. 15:30–17:00. Allir eru hjartanlega velkomnir og léttir drykkir verða í boði í byrjun viðburðar, segir í tilkynningu.
Í tilefni útgáfunnar býður Skáld einnig upp á tvo sérstaka kokteila á Abba-Labba-Lá, Pabbabrandara og Mamma veit best, sem verða til sölu dagana 7.–14. nóvember.