Fara í efni
Menning

Hundur í óskilum fer yfir Njálu á hundavaði

Dúettinn Hundur í óskilum hefur farið mikinn undanfarin ár með sýningum sem slógu hressilega í gegn og nú hefur verið tilkynnt að enn sé von á góðu. Og þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur.

„Þeir eru komnir aftur! Eftir að hafa farið á hundavaði um sögu íslensku þjóðarinnar í þremur brakandi skemmtilegum sýningum – Sögu þjóðar, Öldinni okkar og Kvenfólki – snýr hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum aftur og ræðst á einn af hornsteinum íslenskrar menningar – sjálfa Njálu,“ segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

„Drepfyndin sýning þar sem þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen hlaupa meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt.“

Höfundur verksins er annar hundanna, Hjörleifur Hjartarson, og leikararnir þeir sömu og áður: Hjörleifur og Eiríkur Stephensen.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Tónlist: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir
Lýsing: Ingi Bekk
Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir og Þórunn María Jónsdóttir