Fara í efni
Menning

Höfuðdagur – sendibréf Ingólfs til móður sinnar

Stokkseyri og Akureyri fyrir tæpum hundrað árum eru sögusvið nýrrar bókar eftir Ingólf Sverrisson. Móðir hans, Andrea G. Jónsdóttir, fæddist á fyrrnefnda staðnum árið 1923 en missti báða foreldra sína sex ára gömul og orðin niðursetningur sem hreppurinn kom fyrir hjá bláókunnugu fólki á öðrum bæ. Í bókinni rekur höfundur sögu hennar fyrstu sextán árin á Stokkseyri, hvernig hún komst af við erfiðar aðstæður og hvernig gott fólk og aukinn þroski fleytti henni áfram til bjargálna og farsæls lífs.

Að sögn höfundar vildi hann með bókinni móta heildstæða mynd af þessum afdrifaríku árum móður sinnar í þorpinu. Kynnast aðstæðum þar fyrir eitt hundrað árum, mannlífinu og náttúrunni, baráttu og viðmóti fólksins við syðsta haf sem „getur oft verið gjöfult en krafðist á móti mikilla mannfórna þegar veður fóru hamförum,“ eins og fram kemur í aðfaraorðum.

Ingólfur og bræður hans ásamt eiginkonum þeirra við leiði foreldra bræðranna, Andreu og Sverris Árnasonar, síðasta Höfuðdag, 29. ágúst, þegar 100 ára voru liðin frá fæðingu Andreu.  

Þar segir ennfremur: „Hitt var þó sýnu mikilvægara, að átta sig á því hvaða lærdóm við nútímafólkið getum dregið af aðstæðum sem skópu börnum örlög fyrir eitt hundrað árum. Höfum við gengið götuna til góðs frá þeim tíma?“

Höfundur bókarinnar aflaði sér fjölbreyttra upplýsinga um lífið á Stokkseyri fyrir eitt hundrað árum. Tengdi þær síðan staðreyndum úr lífi móðurinnar á þessum tíma og fyllti upp í með eigin frásögnum úr daglegu lífi hennar og þeirra sem henni stóðu næst. Sögusviðið er einkum kringum bæinn Grímsfjós þar sem hún var í fóstri, Vegamót, bæinn við hliðina og svo lífið í plássinu. Síðan er fjallað um ástæður þess að hún fluttist til Akureyrar og bjó þar í hálfa öld. Þegar eitt hundrað ár voru liðin frá fæðingu hennar, 29. ágúst sl., hafði hún eignast 109 afkmomendur og því óhætt að segja að ferð hennar norður hafi ekki verið erindisleysa, eins og segir í bókinni.

Útgefandi bókarinnar segir á baksíðu: „Bókin er óður til móður sem strax á æskuárum gekk í gegnum ótrúlega þrekraun og stóð að lokum uppi glæsileg og virt kona í fjarlægum landshluta og eignaðist átta börn.“