Fara í efni
Menning

Hnoðri í norðri fékk hvatningarverðlaun

Ljósmyndir: Sindri Swan

Sjálfstæði, norðlenski sviðslistahópurinn Hnoðri í norðri hlaut í nýliðinni viku hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar. Verðlaunin voru veitt af Elizu Reid forsetafrú og verndara Eyrarrósarinnar við hátíðlega athöfn í nýju leikhúsi Handbendis brúðuleikhúss á Hvammstanga.

„Hnoðri í norðri samanstendur af atvinnulistamönnum sem þrjú af sex eru búsett og starfandi á Akureyri. Höfundur og hirðtónskáld hópsins er Þórunn Guðmundsdóttir, en aðalsmerki hennar eru frábærlega fyndnir og hnittnir textar með orðaleikjum auk þess sem tónlist hennar er mjög aðgengileg og yndisleg áheyrnar,“ segir í tilkynningu sem Akureyri.net fékk senda. „Leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir sem þar að auki hannar og gerir leikmyndir og Rósa Ásgeirsdóttir hannar og gerir búninga sem eru mikið fyrir augað. Flytjendur eru Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari og söngkonurnar Björk Níelsdóttir og Erla Dóra Vogler. Hnoðri í norðri leggur metnað sinn í að flytja vandaða tónlist og óperusýningar á Norðurlandi, sérstaklega ætlaðar börnum, þó allir geti að sjálfsögðu haft gaman af þeim.“

Flytja öróperur

„Sviðslistahópurinn tók til starfa árið 2022 og flutti sína fyrstu sýningu, gleðilega og jólalega öróperu, Ævintýri á aðventunni, í nóvember og desember. Sýningin var farandsýning sem unnin var í samvinnu við List fyrir alla og með góðum styrkjum frá SSNE, Tónlistarsjóði, Tónskáldasjóði, Menningarsjóði FÍH, Menningarsjóði Akureyrar og Samfélagssjóði Norðurorku. Sýnt var á 8 dögum á 25 stöðum og sáu tæplega 2000 börn á Norðurlandi frá Vopnafirði til Hvammstanga sýninguna. Börnin jafnt sem kennararnir tóku henni afar vel og hlógu mikið.

Markmið næsta starfsárs er að frumflytja aðra alíslenska öróperu, Skoffín og skringilmenni, fyrir alla 6-10 ára grunnskólanema á Norðaustur og -vesturlandi. Skoffín og skringilmenni verður stutt og laggóð sýning, eða um 30-35 mín að lengd, og er efniviður sóttur annars vegar í hinn undarlega íslenska þjóðsöguarf, sem tengist áramótum og þrettándanum, og hins vegar hina sjarmerandi evrópsku óperuhefð. Menningar- og viðurkenningarsjóður KEA hefur þegar styrkt verkefnið og vinnur hópurinn ötullega að því að fullfjármagna verkefnið.“