Fara í efni
Menning

Hnoðra í Norðri boðið til Norður-Makedóníu

Söngkonurnar Björk Níelsdóttir og Erla Dóra Vogler í jólaóperunni „Ævintýri á aðventunni“ sem þær munu flytja á hátíðinni í Bitola. Ljósmynd: Sindri Swan

Sviðslistahópnum Hnoðra í norðri, sem hlaut Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar í vor, hefur verið boðið að koma fram á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Bitolino í Norður-Makedóníu sem fer fram í Bitola 3.-8. ágúst. Hátíðin er tileinkuð sviðslistum fyrir börn og ungmenni, en auk fjölbreyttra sýninga víðs vegar að úr heiminum, fara fram vinnusmiðjur, kynningar og fundir um barnamenningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum.

Um 2.000 börn sá sýninguna

Hnorði í norðri var stofnaður í ársbyrjun 2022 og var fyrsta sýning hópsins jólaóperan „Ævintýri á aðventunni“ eftir hirðskáld hópsins, Þórunni Guðmundsdóttur. Jólasýningin er verkið sem valið var til sýningar á hátíðinni. Í verkinu er fylgst með systrunum Sollu (sem fylgir jólalögum og ætlar að vera „á bláum kjól“) og Gunnu (sem Solla skikkar til að vera „á nýju skónum“) í jólagjafaleiðangri, en á leiðinni hitta þær nokkrar forhertar íslenskar jólaverur.

„Flytjendur eru söngkonurnar Björk Níelsdóttir og Erla Dóra Vogler ásamt Jóni Þorsteini Reynissyni söngvara og harmonikkuleikara, sem einnig fer með hlutverk Jólakattarins. Leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir og búningahönnuður Rósa Björg Ásgeirsdóttir. Á aðventunni 2022 var sýningin flutt á 25 stöðum fyrir 28 grunnskóla á Norðurlandi í samstarfi við List fyrir alla og með fjölda góðra styrkja. Tæplega 2000 börn, allt frá Vopnafirði til Hvammstanga, sáu sýninguna ... “

Mörg járn í eldinum

Hópurinn er með mörg járn í eldinum, að því er segir í tilkynningunni. „Fyrir komandi jól verður Ævintýri á aðventunni sýnt í Salnum á Aðventuhátíð í Kópavogi og í beinu framhaldi í Samkomuhúsinu á Akureyri í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Þá er í undirbúningi mikil nýársgleðisýning til flutnings snemma árs 2024 þar sem teflt er saman íslenskum þjóðsögum tengdum nýárinu og þrettándanum og hins vegar evrópskri nýársgalahefð. Sýningin, sem hlotið hefur nafnið Skoffín og skringilmenni, verður af tvennum toga - annars vegar verður boðið upp á barnaútgáfu fyrir grunnskóla og hins vegar kabarettlegri fullorðinsútgáfu til sýningar í samkomuhúsum á Norðurlandi.“

Hnoðri í norðri: www.facebook.com/hnodrinordri/