Fara í efni
Menning

Hjartsláttinn var að finna í kjörbúðinni

Ljósmyndasýning sem tengist matvörubúðum á Akureyri verður opnuð í Minjasafninu á Akureyri á morgun, föstudag. Á sýningunni Hér stóð búð gefur að líta ljósmyndir frá ýmsum tímum. Sýningin lýsir í senn þróun hverfisverslana í stórmarkaði en fangar ekki síður tíðarandann, þegar hjartslátt hverfisins mátti finna í kjörbúðinni, eins og það er orðað í tilkynningu frá safninu.

„Allir eiga minningar úr búðinni. Ekki síst þeir sem muna hverfisverslanir og kjörbúðir, svo ekki sé minnst á sjoppur og hangsið sem þeim fylgdi. Í eina tíð voru slíkar verslanir nánast á hverju götuhorni, jafnvel var matvörurúta í einu hverfi Akureyrar,“ segir í tilkynningunni.

„Var keypt kók fyrir helgar á þínu heimili, jafnvel hverja helgi? Manstu þegar ávextir voru ekki jafn sjálfsagðir og nú? Manstu þegar sælgæti var keypt á tyllidögum og var minna í sniðum, áður en lítið varð stórt og stórt stærra? Þegar kaupmaðurinn á horninu var ígildi kreditkorts, því hjá flestum var hægt að skrifa þær vörur sem teknar voru út. Það var í sjálfu sér söguleg arfleifð frá tíma einokunarverslunarinnar.“

Milljónir ljósmynda

„Sýningin er unnin úr ljósmyndasafni Minjasafnsins, sem telur yfir þrjár milljónir mynda. Þótt ljósmyndasafnið sé stórt er þar ekki allt að finna sem verðmæti væri í að varðveita. Því væri fengur fyrir safnið að vita hvort úti í samfélaginu leynist ekki myndir sem tengjast þessum skemmtilega þætti menningarinnar sem hverfisverslanir voru.

Annar megin þáttur sýningarinnar eru sögurnar sem leynast þarna úti, minningarnar sem tengjast búðunum, ferðinni í búðina með minnismiðann eða innkaupanetið, afganginn sem mátti kaupa nammi fyrir, kannski í fyrsta sinn. Fannstu ástina í kjörbúðinni eða sjoppunni? Við viljum líka fá að heyra sögur þeirra sem unnu í búðunum, stóðu fyrir aftan búðarborðið, fylltu á hillurnar, sendust með vörurnar.“

60 ára afmæli safnsins

Í kynningu frá safninu segir ennfremur:

„Segðu okkur þína sögu. Starfsfólk safnsins verður til staðar á sýningunni en einnig verður opnuð Facebook síðan Hér stóð búð … á Akureyri þar sem hægt verður að deila minningum og myndum. Hver veit nema þín mynd rati á sýninguna? Einnig er hægt að senda okkur sögur og myndir á netfangið minjasafnid@minjasfnid.is

Á sýningunni verður einnig hægt að fara í búðarleik í Litlu-Kjörbúðinni, bregða sér á bakvið búðarborðið eða kaupa inn fyrir helgina. Athugið að ekki verður selt út um lúguna!

Sýningin markar upphaf afmælisárs Minjasafnsins á Akureyri sem fagnar 60 ára afmæli á árinu með sýningum bæði innan veggja safnsins og utan, viðburðum, ljóðahátíð, tónleikum og menningarsmiðjum fyrir börn og ungmenni. Fylgist með frá byrjun.

Í tilefni afmælisársins býður safnið upp á Afmæliskort safnsins sem gildir allt árið og veitir aðgang að fimm söfnum; Minjasafninu á Akureyri, Nonnahúsi, Leikfangahúsinu, Davíðshúsi og Laufási. Verðið er vandræðalega lágt eða kr. 2.000 fyrir eldri en 18 ára, 1.000 kr fyrir heldri borgara en ókeypis er fyrir öryrkja.“

Sýningin Hér stóð búð! í Minjasafninu verður opnuð klukkan 13.00 á morgun, föstudag.

Kjörbúð Kaupfélags Eyfirðinga í Höfðahlíð 1, ein margra hverfisverslana KEA á sínum tíma.