Fara í efni
Menning

Herrann, kórinn Embla, Þokkabót og heimspeki

Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.

Tónleikar

 

T.v. Kvennakórinn Embla flytur Messu fyrir særða jörð. T.h. Málverk Jóhönnu V. Þórhallsdóttur af Sigurði Breiðfjörð, en Óttar Guðmundsson heldur kynningu á bók sinni 'Kallaður var hann kvennamaður', um ævi Sigurðar á Amtsbókasafninu í vikunni.

Listasýningar:

  • TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri.
  • SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri.
  • Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.
  • Samtal - myndlistarsýning. Listakonurnar Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir mætast undir sýningarheitinu Samtal í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Stendur til 3. júní og opið alla daga frá 12.-17.

Aðrir viðburðir

  • Heimspekikvöld Kaktus. Umræða um bókstaflega list eða táknfræði í húsnæði Kaktus í Ketilhúsinu. Fimmtudaginn 29. maí kl 20.
  • Kallaður var hann kvennamaður. Óttar Guðmundsson kynnir bók sína um æfi Sigurðar Breiðfjörð. Jóhanna V Þórhallsdóttir kveður rímur. Amtsbókasafnið, föstudaginn 30. maí kl. 16.
  • Tales of the Nature Spirits. Alþjóðleg ráðstefna í Hofi um sögu náttúruvætta. Laugardag 31. maí og sunnudag 1. júní. 

 


Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.