Heiðra minningu Tinu Turner á Græna hattinum
Tónleikar til heiðurs söngkonunni Tinu Turner verða á Græna hattinum annað kvöld, föstudagskvöld. Þar stíga á svið Bryndís Ásmundsdóttir og hljómsveit en Bryndis hefur lengi flutt lög Tinu með tilrifum.
„Tónleikarnir eru mér sérstaklega hjartfólgnir. Tina Turner lést 24. maí 2023 og nú rúmum þremur árum síðar, langar okkur að heiðra minningu hennar og þann ótrúlega tónlistarferil sem hún skildi eftir sig,“ segir Bryndís.
„Það er líka ákveðin saga á bak við þessa tónleika. Þeir áttu upphaflega að fara fram í júní en á meðan ég var stödd í Búdapest þurfti ég óvænt að gangast undir bráðaaðgerð og varð því að fresta þeim,“ segir söngkonan. „Núna er ég komin aftur á fullt og er eingöngu að koma til Íslands í þessa ferð til að stíga á svið og flytja tónlist Tinu. Það gerir þessa tónleika enn persónulegri fyrir mig – þetta verður sannkölluð hylling til konu sem var einstök, bæði sem listamaður og persóna.“
Með Bryndísi á sviðinu verða hennar traustu hljómsveitarmeðlimir og „stórskotalið til margra ára,“ eins og hún orðar það:
- Einar Þór Jóhannsson – gítar
- Vignir Þór Stefánsson – hljómborð
- Steinar Sigurðarson – saxófónn
- Birgir Kárason – bassi
- Ólafur Hólm Einarsson – trommur
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00.