Harmonikutónleikar Stórsveitarinnar

Stórsveit Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð (FHUE) undir stjórn Roar Kvam heldur tónleika í sal Brekkuskóla sunnudaginn 15. júní klukkan 16:00.
„Það er óhætt að segja að efnisskráin sé ein sú metnaðarfyllsta sem sveitin hefur lagt í hingað til í kröftugum útsetningum Roar Kvam ásamt fleirum. Efnisskráin er fjölbreytt en þar má finna Rímnadans eftir Jón Leifs, þjóðlög, kvikmyndatónlist, klassík og allt þar á milli. Einleikur verður í höndum hinna ýmissa félaga stórsveitarinnar,“ segir í tilkynningu frá Stórsveitinni.
Miðaverð er 4.000 kr. en ókeypis fyrir 16 ára og yngri.
Upphaf FHUE má rekja til ársins 1978 þegar Hannes Arason, fyrsti formaður félagsins, var fenginn til að hóa saman harmonikuleikurum til að spila á 17. júní samkomu á Akureyri, að því er fram kemur í fyrrnefndri tilkynningu. „Í framhaldinu fór sá hópur að huga að stofnun harmonikufélags, sambærilegt þeim sem þegar höfðu verið stofnuð í Reykjavík og Þingeyjarsýslum. Á sama tíma stóð hópurinn fyrir undirskriftarsöfnun þar sem skorað var á Tónlistarskóla Akureyrar að bjóða upp á harmonikukennslu, en það hafði ekki verið í boði fram að því.“
Fyrsti fastráðni kennarinn?
Þáverandi skólastjóri, Jón Hlöðver Áskelsson, tók vel í beiðni hópsins, segir í tilkynningunni, „og var það Hannes sem fékk kennara til að flytjast í bæinn og hefja kennslu við Tónlistarskólann á Akureyri haustið 1979. Sá kennari var Karl Jónatansson og telja margir að hann hafi verið fyrsti fastráðni harmonikukennari sem er ráðinn við tónlistarskóla hér á landi.“
Þegar félagið var síðan formlega stofnað árið 1980 varð vísir að stórsveit FHUE til. „Hafa margir félagsmenn FHUE leikið með stórsveitinni síðan þá til dagsins í dag og ávallt undir stjórn vel færra manna, fyrstur var þar Karl Jónatansson. Roar Kvam tók við stjórnun sveitarinnar árið 2007 og hefur hann útsett á fjórða tug verka fyrir sveitina. Sveitin hefur komið fram víða um land á landsmótum harmonikufélaga og reglulega haldið tónleika.“
Stjórnandinn
Stjórnandinn, Roar Kvam, hefur unnið til verðlauna með hljómsveitum sínum í fjölda tónlistarkeppna s.s. 1. verðlaun við World Music Contest, Kerkrade í Hollandi og International Youth Music Festival, Zürich í Sviss, segir í tilkynningunni.
„Roar stofnaði og stjórnaði Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri og síðar Blásarasveit æskunnar í 25 ár. Hann stofnaði Kammerhljómsveit Akureyrar, fyrirrennara Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og stjórnaði henni fyrstu fimm árin. Roar stofnaði Passíukórinn á Akureyri 1972 og stjórnaði honum alla tíð eða til ársins 1997. Hann stjórnaði Lúðrasveit Akureyrar í sjö ár og Karlakór Akureyrar-Geysi frá sameiningu kóranna 1990-2000, Kvennakórnum Lissý frá 1999-2001, Kvennakórnum Emblu frá 2002 til dagsins í dag og Stórsveit FHUE frá 2007 til dagsins í dag.“
1. harmoniku skipa:
Einar Guðmundsson
Jóhannes Jónsson
Elsa Auður Sigfúsdóttir
Árni Ólafsson
2. harmoniku skipa:
Olga Iukmanova
Svetlana Birta Snorrason
Daníel Guðjónsson
3. harmoniku skipa:
Guðmundur Sigurpálsson
Ævar Ragnarsson
Maria Kirilova Traykova
Agnes Harpa Jósavinsdóttir
Hrynsveit skipa Halldór Gunnlaugur Hauksson, trommari, Pétur Ingólfsson, bassaleikari og gítarleikarinn Dimitrios Theodoropoulos.