Fara í efni
Menning

Haraldur Ingi sýnir í Deiglunni til páska

Eitt verka Haraldar á sýningunni - úr seríunni Lýðskrumarar.

Haraldur Ingi Haraldsson myndlistarmaður opnar á laugardaginn einkasýningu í Deiglunni, sýningarsal Gilfélagsins í Listagilinu á Akureyri.

„Myndirnar eru allar frá vinnustofudvöl Haraldar Inga í Svarta pakkhúsinu í Reykjanesbæ á síðasta ári. Myndirnar eru hengdar upp á frjálslegan hátt enda ekki verið að setja upp sýningu í eiginlegri merkingu heldur að hengja upp afköst vinnutarnar fyrir listamanninn að meta árangur hennar, samhengi og eða sundurlyndi þess sem ratað hefur frá huga í hendur,“ segir í tilkynningu. Þar segir að Haraldur Ingi verði að vinna við ýmiskonar dund og frágang meðan á sýningunni stendur.

Sýningin verður opnuð klukkan 14.00 á laugardaginn, 27. mars, og stendur til páskadags, 4. apríl. Hún er „opin þegar hún er opin,“ segir í tilkynningunni en tekið fram að helgidagana verði Haraldur á staðnum frá því um klukkan 10.00 á morgnana til klukkan 22.00 á kvöldin.

Haraldur Ingi er menntaður í myndlist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands og frá AKI Akademie voor Beldende Kunst, Enchede, Holland og Frie Akademie Psykopolis Den Haag, Hollandi. „Hann hefur haldið tugi myndlistasýninga en enga á merkilegri stað en í Rauðahúsinu á Akureyri forðum daga,“ segir í áðurnefndri tilkynningu.