Fara í efni
Menning

Hamingjudagar Becketts frumsýndir föstudag

Edda Björg Eyjólfsdóttir sem Vinní í Hamingjudögum Samuels Beckett.

Leikverkið Hamingjudagar eftir Samuel Beckett verður frumsýnt í Svarta kassanum í Menningarhúsinu Hofi annað kvöld, föstudagskvöldið 2. september. Með hlutverk Vinní fer leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir en eiginmann hennar leikur Árni Pétur Guðjónsson. Leikstjóri Hamingjudaga er Harpa Arnardóttir og Brynja Björnsdóttir sér um leikmynd og búninga.

„Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að finnast lífið hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.

„Hamingjudagar er um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar og er áreiðanlega lang skemmtilegasta leikrit nóbelshöfundarins sem lætur gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi,“ segir í kynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Aðeins verða fjórar sýningar í Hofi en svo fer sýningin suður í Borgarleikhúsið.