Fara í efni
Menning

„Hamingja“ og „Prestur fer á stefnumót“

Tvö ný verk eru komin út í Pastel ritröð vegum Flóru menningarhúss í Sigurhæðum og verður útgáfunni fagnað í hófi sem fram fer í húsinu kl. 13:00 í dag.

Annars vegar er um að ræða verkið Prestur fer á stefnumót eftir séra Hildi Eir Bolladóttur, mögnuð og hárbeitt smásaga, eins og það er orðað í tilkynningu, hins vegar verk sem ber titilinn Hamingja, „einstaklega fimlega rituð og grípandi smásaga,“ að því er segir í tilkynninguf rá Flóru.

„Eins og kunnugt er þá er Hildur Eir skáld og líka prestur við Akureyrarkirkju og hefur hún áður gefið út þrjár bækur; Hugrekki saga af kvíða, Líkn og Meinvarp,“ segir í tilkynningu Flóru.

Verkin tvö eru eins og önnur Pastel verk gefin út í 100 númeruðum og árituðum eintökum og verða ekki endurútgefin. Verk Marks Baldurs er númer 41 en Hildar númer 42 og er það seinasta verkið í röðinni. Flóra hefur nú staðið að ritröðinni í áratug, „lengst af í samstarfi við Menningarsjóð Akureyrar, listamenn ritraðarinnar, Uppbyggingasjóð Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Útgáfufélagið og fleiri góða aðila.“

Pastelritin eru útlitshönnuð og sett upp fyrir prentun hjá Cave Canem hönnunarstofu og er prentun í umsjón Prentsmiðjunnar á Akureyri.

Hægt er að nálgast eintak á www.pastel.is og útgáfuhóf verður í Sigurhæðum í dag, sumardaginn fyrsta, sem fyrr segir.