HA býður nýgiftum til Mendelssohn veislu

Hljómsveit Akureyrar flytur tónlist þýska tónskáldsins Felix Mendelssohns í Hofi næsta laugardagskvöld, meðal annars lag sem flestir kannast vel við og hljómsveitin bregður á leik á skemmtilegan hátt af því tilefni.
„Mendelssohn var undrabarn í tónlist,“ segir Michael Clarke, stjórnandi Hljómsveitar Akureyrar. „Eitt af verkunum sem við flytjum samdi hann bara 17 ára, en það er kannski eitt vinsælasta lag í heimi. Það er nefnilega spilað við nánast hvert einasta brúðkaup. Brúðkaupsmarsinn hans Mendelssohn er lagið sem er spilað þegar gengið er fram kirkjugólfið í lok athafnarinnar. Svo er það Brúðarmarsinn eftir Wagner sem er gjarnan spilaður þegar brúðurin gengur inn kirkjugólfið.“
Þessi skemmtilega tenging við brúðkaup er tekin skrefinu lengra hjá Michael og Hljómsveit Akureyrar, en öllum þeim sem gengu í það heilaga á árinu hingað til, er boðið að fá frímiða á tónleikana í brúðkaupsgjöf. „Það eru reyndar bara sextíu svona miðar í boði, en fyrst koma, fyrst fá,“ segir hljómsveitarstjórinn.