Fara í efni
Menning

Guðbjörg Ringsted sýnir í Bergi á Dalvík

Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýninguna Blómlegt í menningarhúsinu Bergi á Dalvík næsta laugardag, 10. maí . Þar sýnir hún ný og nýleg verk og viðfangsefnið er sem fyrr, útsaumsblóm af íslenskum kven-þjóðbúningum. Guðbjörg hefur unnið með þetta þema í u.þ.b. 18 ár og vinnur frjálst með efnið. „Það má e.t.v. segja að blómin öðlist sitt eigið líf á myndfletinum og fari sínar eigin leiðir. Oft er þar einhverskonar dans blómanna á myndfletinum eða frelsisþrá, eitt blómanna skýst af leið eða sker sig úr á annan hátt,“ segir í tilkynningu um sýninguna.

Guðbjörg útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982, grafíkdeild, og hefur unnið að myndlist síðan þá. Fyrst við grafíkina, síðan teikningar en akrílmálverkið er nú allsráðandi. Þetta er 36. einkasýning Guðbjargar en samsýningarnar eru orðnar 50. Nánari upplýsingar um listakonuna á vef hennar: www.gudbjorgringsted.is

Sýningin stendur til 3. júní og er opin á opnunartíma Bergs.